fimmtudagur, 2. desember 2010

Stjórnarskráin og börn

Nú nýverið voru kosningar til Stjórnlagaþings þar sem 25 einstaklingar voru kosnir af 522 frambærilegum frambjóðendum, þar á meðal undirrituðum, til að endurskoða núverandi stjórnarskrá og gera á henni breytingar. Þau mál sem er líklegt að komi til umræðu eru m.a. eignarhald þjóðarinnar á náttúruauðlindum, samband eða aðskilnaður ríkis og kirkju, þrískipting valdsins og nánari aðgreining þar á milli, hlutverk forseta Íslands og margt fleira. Einnig má ætla að mannréttindarkaflinn verði ítarlega ræddur.

Rétt eins og nafn þessa bloggs gefur til kynna mun ég birta hér hugleiðingar mínar sem og annarra, eftir því sem við á, um vernd og réttindi barna og hvernig hægt er að gefa þeim vægi í stjórnarskrá Íslands. Fyrstu færsluna má sjá hér að neðan.


Engin ummæli:

Skrifa ummæli